Tveir kallar

Tveir kallar með podcast. 

tveirkallar.is 

@tveirkallar á Instagram

Episodes

Sep 15, 2025

1hr 23 min

Tveir kallar fá Björgvin Franz Gíslason til liðs við sig til að svara því hvort það megi ekkert grínast lengur. Þeir leggja leið sína í piparsveinsíbúð í miðbænum þar sem Björgvin trúir þeim fyrir nokkru sem hann hefur nánast engum sagt áður og fara svo á sportbar þar sem þeim berst óvænt ástarjátning.

Sep 8, 2025

1hr 14 min

Tveir kallar læra um muninn á staðreyndum og skoðunum, fara í fýlu í mörg mörg ár og ætla sko aldrei aftur að tala við vin sinn en fá síðan óvænta gjöf sem þeir þola ekki.
Þökkum áheyrnina og þiggjum endurgjöf hér eða á Instagram.@tveirkallar og tveirkallar.is 

Sep 1, 2025

1hr 40 min

Tveir kallar fara víða í þessum þætti, kíkja meðal annars á djammið, taka þátt í eftirlitsferð óbreyttra borgara og fara svo beint á AA-fund.

Aug 25, 2025

1hr 2 min

Tveir kallar telja tröppur og tala um trans fólk en fara svo að pissa og hitta einhvern sem heilsar þeim innilega en þeim finnst þeir aldrei nokkurn tíma hafa séð hann áður.

16: Þungir karlar

Aug 18, 2025

Aug 18, 2025

1hr 20 min

Tveir kallar bregða sér á leik í amerískum fótbolta í Fíladelfíu og yfir löðrandi (vegan) cheesesteak í hálfleik fara þeir á trúnó um þunglyndi sem lét lítið á sér kræla en hafði ógnvekjandi áhrif þegar til kastanna kom. Þátturinn er ekki í boði Sertral.

Aug 11, 2025

1hr 3 min

Tveir kallar fara á ströndina með börnin, velta fyrir sér hvort þeir noti konuna sína sem andlega ruslatunnu og fela sig svo inni á klósetti til að hlaða félagslega batteríið.
 
Tveir kallar á YouTube
Tveir kallar á Instagram
tveirkallar.is 

Aug 4, 2025

54 min

Tveir kallar fara á miðilsfund, velta fyrir sér hvort ofbeldi sé að aukast í samfélaginu og redda í algjöru stressi afmælisgjöf fyrir 11 ára frænku.

Jul 28, 2025

1hr 4 min

Tveir kallar eru á leiðinni til Hollywood, fara á trúnó um heimilisstörfin og skilgreina það sem kollegar hafa þráspurt um: Hvað er karlmennska?

Jul 20, 2025

51 min

Öðrum kallinum er komið á óvart með snúnum barsvarsspurningum, stressaður fyrirlesari opnar sig og Tveir kallar segja frá því hvað varð til þess að þeir urðu femínistar.

Jul 14, 2025

1hr 5 min

Tveir kallar eru á leiðinni til læknis þegar það springur dekk. Þeir fara létt með að skipta og ræða á meðan um heimgreiðslur til mæðra.

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125