Tveir kallar

Tveir kallar með podcast. 

tveirkallar.is 

@tveirkallar á Instagram

Episodes

50: Éttu skít

Jun 22, 2026

Jun 22, 2026

1hr 39 min

Tveir kallar fagna tímamótum í sérstökum hátíðisþætti. Á boðstólum er bakkelsi úr bakaríinu (ekkert vegan) og gestirnir eru hinir íslensku meðalkarlmenn. Athyglissjúki introvertinn sér um skemmtiatriði og í sérstökum lið þarf Þorsteinn að þegja allan tímann (spoiler: það mistekst). Annar kallinn er síðan tekinn fyrir á sviðinu og að lokum velta kallarnir fyrir sér framtíð þáttarins. Svo vill annar þeirra endilega prófa að éta skít.

Jun 8, 2026

1hr 18 min

Tveir kallar ganga um í grænni náttúrunni þar til hún hættir að vera græn og verður fjólublá, setja fyrrverandi kærustur (ekki) í minningakassann, ræða skólakerfið út frá kynjum og furða sig á blaðamanni. Svo reyna þeir að hlúa að þeirri litlu geðheilsu sem þeir eiga eftir.

May 25, 2026

1hr 6 min

Tveir kallar hverfa aftur til ársins 1995 (það er tveimur árum áður en prumpulagið kom út en samt býr ennþá skrítinn kall í Vesturbænum) og… æi, það skiptir engu máli því hinn kallinn er alltaf að rembast við að skrifa hérna þrælhnyttnar og gáskafullar lýsingar á þáttunum en svo kom í ljós að þið eruð bara ekkert að lesa þær. ;(

May 11, 2026

1hr 30 min

Tveir kallar detta í að tala um kosningabaráttuna í þætti sem átti að koma út eftir kosningar en ákveða á síðustu stundu að breyta til og flýta útgáfu, segja frá tengslum við samsærisnöttara og Sjálfstæðisflokkinn, hafa engan tíma fyrir hlustendur og finna á endanum gleðina í heimi hörmunga.
E.S. Vegna framkvæmda í stúdíóinu er ekkert vidjó með þessum þætti og því engin mynd af tveimur köllum.

May 4, 2026

1hr 20 min

Tveir kallar fara í leikhús, hringja í kerlingu og læra ekki nafnið á neinum sem þeir hitta. Þeir bjóða í matarboð en muna ekki alveg hvernig bróðir þeirra lítur út.

Apr 20, 2026

1hr 20 min


Skilaboð berast frá Hollandi og trufla tvo kalla við að rifja upp menntaskólaárin þegar annar þeirra var fótboltasjomli og hinn dauðarokkari. Þeir snúa bökum saman og reyna að róa fíl í postulínsbúð, fá hataða hópa til að hata minna og svara að lokum spurningu áður en hún berst.

Apr 6, 2026

1hr 21 min

Nokkrir alveg ótrúlega óheppnir karlar fara saman í ferðalag, halda þriðja í páskum heilagan, gefa gjafir, fara í golf og hafa gaman en brjóta engin lög (svo sannað sé). Síðan fá þeir ofnæmi fyrir heiminum, stíga til hliðar og hefja störf við umönnun.

43: Núna má allt

Mar 23, 2026

Mar 23, 2026

1hr 34 min

Tveir kallar eiga við ýmis heilsufarsvandamál að etja svo þeir fara í rannsóknir og tala um rannsóknir og láta stinga sig til blóðs. Í sjúkrarúmunum horfa þeir á heimildarmyndina Inside the manosphere og ræða hana. Sverrir Bergmann kemur ekki í heimsókn á sjúkrahúsið. Þeir hrósa hver öðrum enn einu sinni (er ekki komið nóg af þessari vitleysu?), drulla á sig og sýna af sér hvatvísi í hvívetna en hverjum er ekki drullusama – kallar mega allt.

Mar 9, 2026

1hr 13 min

Tveir kallar ropa án þess að segja afsakið, eru eitthvað pirraðir og reka hlaðvörp í umvörpum. Tveir kallar kalla kallakalla kallakalla en vita ekki alveg hvað þeir eiga að kalla kallakallapælingar dagsins svo þeir ákveða að njóta lista, lesa skáldskap og hringja í gamla vini sem þeir gleymdu.

41: Bein pæling

Feb 23, 2026

Feb 23, 2026

1hr 26 min

Tveir kallar taka hlaðvarp í beinni útsendingu, hlustendum dagsins rignir inn í símtölum og báðir fara á trúnó. Ekkert eitthvað. Ging gang gúllí gúllí.

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125