Tveir kallar
Episodes

Feb 9, 2026
Feb 9, 2026
1hr 16 min
Tveir kallar tala um þumalputtablöðrur (ekki spyrja) og ógleymanlegar tölur, horfa á fræga kvikmynd sem fjallar ekki um það sem við héldum og ákveða síðan að gerast eltihrellar konu sem er ekki til. Síðan finna þeir sér sálfræðing. Ekki veitir af.

Jan 26, 2026
Jan 26, 2026
1hr 15 min
Tveir kallar deyja ungir og hefja eftirlífið þar sem þeir ræða óhjákvæmilega um trú og tilfinningar. Þeir verða vegan en eru svo umkringdir af konum yfir fimmtugt. Þá teleporta þeir sig í burtu.
Minnum á umræðuhópinn okkar á Facebook, Instagrammið okkar og upptökur af þáttunum á tveirkallar.is

Jan 22, 2026
Jan 22, 2026
1hr 9 min
Tveir kallar mislesa aðstæður og mistekst að halda uppi kurteislegum samræðum svo þeir flýja land og skoða sig um í Japan. Þeir finna pillur og gamlar glósubækur og nagandi ótti um óuppgerð mál grípur um sig.
Finnið okkur á Instagram, tveirkallar.is og svo er umræðuhópur á Facebook.

Jan 15, 2026
Jan 15, 2026
1hr 22 min
Tveir kallar mæta í skítakulda í fordómabygginguna, segja „sæll, vinur“ og gefast upp á kennslu. Þeir velta fyrir sér hvort það sé í raun og veru hægt að taka samtalið við kollega og svo mála þeir sig.

Jan 5, 2026
Jan 5, 2026
1hr 8 min
Útkall, útkall! Annar kallinn er vant við látinn svo hinn kallinn kallar út enn annan kall, svokallaðan útkall, sem svarar kallinu. Þessir tveir kallar lenda í myglu svo þeir setja ilmefnafrítt rúðupiss á bílinn og bruna í barnaafmæli, gefa léleg ráð og ýta á vitlausa takka.

Dec 29, 2025
Dec 29, 2025
1hr 18 sec
Tveir kallar gera samfélagsmiðlatilraunir í fortíð og nútíð og eflaust framtíð líka, skoða karla og umhverfi þeirra og neita að fara að sofa. Svo flytja börnin þeirra að heiman.

Dec 22, 2025
Dec 22, 2025
49 min
Í sérstökum jólaþætti fá tveir kallar óvænta heimsókn frá Gáttaþefi og spyrja hann út í heimilisstörf í hellum, goðsögnina um barnaát, jólalagatexta sem eru bara eitthvert bull, kartöflurækt á fjöllum og af hverju sum fá lengur eða meira í skóinn en önnur. Athugið að þátturinn ER við hæfi barna. Gleðileg jól og verið góð hvert við annað.

Dec 15, 2025
Dec 15, 2025
1hr 19 min
Tveir kallar festast í lyftu og bíða þess aldrei bætur, týna frisbígolfdisk og furða sig á verkalýðsleiðtoga. Síðan segja þeir siðspilltum stórfyrirtækjum stríð á hendur.
Instagram @tveirkallar
tveirkallar.is

Dec 8, 2025
Dec 8, 2025
1hr 17 min
Tveir kallar fá flugfreyju og sjómann til að hjálpa sér, verða grasekklar, pakka í spítalatöskuna, eru gerðir útlægir, leiðrétta málfræði hvor annars (nei ok, bara á annan veginn) og hringja í flugmann á Tenerif. E.

Dec 1, 2025
Dec 1, 2025
1hr 17 min
Tveir kallar leita bæði þriggja fyrrverandi fylgjenda og sökudólgsins sem ber ábyrgð á lækkaðri fæðingartíðni og Valgeir Dór kemur úr felum en lýsir skömmustulegur ströggli við atvinnuleit og krefst svara fyrir hönd reiðra karla. Brjálað að gera.





