Tveir kallar

Tveir kallar með podcast. 

tveirkallar.is 

@tveirkallar á Instagram

Episodes

Nov 24, 2025

1hr 37 min

Tveir kallar eru boðnir í partí og mæta ekki því þeir vilja frekar horfa á sjónvarpið. Mesti rasisti og mesta karlremba landsins hafa samband en verra er að Tveir kallar lenda í small talki úti í búð. Síðan þarf að kjósa hver verður rekinn úr samfélaginu.
Horfðu á tveirkallar.is 

Nov 17, 2025

1hr 5 min

Tveir kallar kaupa sér sportbíl og bruna af stað. Á leiðinni fara þeir í „hvort myndirðu frekar“, greiða úr flækjum, gubba, fara í kulnun, læra að smíða, finna gömlu vopnin sín og þrífa stór heimilistæki eins og

Nov 10, 2025

1hr 5 min

Tveir kallar ætla að ganga í leynireglu fyrir karla en mega ekki vera memm svo þeir fara óboðnir í afmæli í staðinn. Óvænt símtal á sér stað og þeir gerast bæði leiðtogar í költi og ráðherrar.
Tveirkallar.is
Tveir kallar á Instagram

Nov 3, 2025

1hr 42 min

Þátturinn ætti náttúrulega að heita Aðalkall því þetta er Páll Óskar. Þetta er ekki viðtalsþáttur heldur tekur Palli þátt í hefðbundnum dagskrárliðum með Tveimur köllum. Saman ræða þeir að sjálfsögðu um fótbolta (ha?), bakslagið, framlengingarsnúrur, kyndilbera minnihlutahópa, ókynslóðabundna tónlist og veiðileyfi á trans fólk.
 
„Við getum víst lifað saman undir sama þaki, í sama herbergi. Við getum víst verið saman í sömu skólastofu. Við getum víst verið saman í sama skólanum. Við getum víst farið saman á sama skólaballið.“
 
Horfðu á tveirkallar.is
Vertu með á Instagram
 

Oct 27, 2025

1hr 4 min

Tveir kallar eignast fyrsta barnið sitt og lífið tekur stakkaskiptum – sem endar með skilnaði og ósköpum. Þeir ranka við sér í aftursætinu hjá mömmu að borða normalbrauð og leita sér að fyrirmyndum því þegar allt kemur til alls eru þeir bara litlar karlrembur að reyna að skilja heiminn og finna tóninn sinn.
 
Horfðu tveirkallar.is
Fylgstu með á Instagram
 

Oct 20, 2025

54 min

Tveir kallar lenda í þýskum heimildarþætti svo þeir raka sig og halda afmæli, stilla upp air fryer og nota nóg af MSG. Trúnó dagsins er svo nokkuð sem hlustendur hafa beðið eftir frá fyrsta þætti Tveggja kalla.
 
Horfðu á tveirkallar.is
Fylgstu með á Instagram
 

Oct 13, 2025

1hr 29 min

Tveir kallar skamma hvor annan, komast að því að náinn vinur hefur stundað hatursorðræðu, tala um konur karlanna sem sogast inn í manosphere-ið og í Hlustanda dagsins er alveg bannað að snúa út úr sem minnir mig á frænda minn sem fékk einu sinni bronkítis á siglingu inn í Svartahafið.
 
Horfðu tveirkallar.is

Oct 6, 2025

1hr 13 min

Tveir kallar fá hótun frá nágranna, lenda í fábreytnibyltingunni, gleyma sér í símanum og ættleiða barn.
tveirkallar.is

Sep 29, 2025

1hr 8 min

Tveir kallar skoða gröf og greiningar, trans og tölfræði, fylgni og fjöldatölur. Fyrst tala þeir þó að sjálfsögðu um dauðann. Eftir að þeir hafa velt fyrir sér hvers vegna örvhentu fólki hefur farið fjölgandi svarar annar þeirra kollega sem hefur farið með fleipur um hann. Í lokin keyra þeir hringveginn og deila uppskriftum með hlustendum. Eðlilega.
 
Tveir kallar á Instagram
Horfðu á tveirkallar.is 

Sep 22, 2025

1hr 6 min

Tveir kallar fara til tannlæknis og dýralæknis en þegar það á að fara að draga þá til sálfræðings líka þykir þeim nóg komið og fara að horfa á sjónvarpið. Síðan grafa þeir hund.
 
Tveir kallar á Instagram
tveirkallar.is
 

Copyright 2025 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125